Sjampó sem stuðlar að heilbrigðum hársverði og hentar öllum hárgerðum. Virkar róandi og hreinsandi á hársvörð og hefur jákvæð áhrif á örhringrásina. Sjampóið inniheldur mentol sem gefur tilfinningu af frískelika og stuðlar að stöðugu blóðflæði í hársverði. Með reglulegri notkun stuðlar þú að betri skilyrðum fyrir heilbrigðan hárvöxt. Sjampóið inniheldur salisýlsýru sem hjálpar við að hreinsa hársvörð og opna stíflur.
Samverkandi þættir innihaldsefna Bio Botanical vörunnar veita grundvöll fyrir góð skilyrði hárvaxtar en auk arfgengra þátta getur hárlos stafað af stíflu og bólgum í hársekkjum. Streita, hormónabreytingar, léleg örblóðrás og lyfjanotkun eru meðal þátta sem geta valdið hárlosi. Með því að huga að hársverði geta skapast betri skilyrði fyrir heilbrigðan hárvöxt og þannig komið í veg fyrir hárlos.
System 4 vöruúrvalið á sér djúpar rætur í finnskum hjörtum en sem eitt þekktasta merki sinnar tegunda þar í landi hefur það hlotið mikið lof fyrir skilvirkni gegnum árin.